X

Um Quiznos

Árið 2007 gerði Olíuverzlun Íslands samning við Quiznos um kaup á sérleyfisrétti (franchise) fyrir Ísland. Olís hefur síðan þá opnað Quiznos-staði á stærri þjónustustöðvum félagsins en fyrsti staðurinn var opnaður í nýrri þjónustustöð í Norðlingaholti við Rauðavatn.

Quiznos Sub var stofnað í Denver, Colorado árið 1981 af Chef Jimmy. Árið 1991 voru Quiznos-staðirnir orðnir 18 talsins og tók þá við rekstrinum nýr aðili sem tók þá ákvörðun að gera staðina að alþjóðlegri sérleyfiskeðju, (franchise-keðju) og hefur það tekist með þeim árangri að Quiznos er sú keðja sem stækkaði hraðast í heiminum á árunum 2003-2006. Í dag eru staðirnir orðnir 4.500 um heim allan.

Heiða Óladóttir hefur með höndum daglega umsjón með Quiznos og veitir allar almennar upplýsingar um starfsemina. Vinsamlegast sendið ábendingar á netfangið quiznos@quiznos.is eða í síma 515 1178 milli kl. 08.00 og 16.00 alla virka daga.